Hvers vegna stillingar?
Vefnotendur eru allt frá því að hafa fullkomna sjón yfir í það vera blindir.
Þarna á milli eru notendur með margs konar þarfir sem reynt er að koma til móts við með valmöguleikunum sem Mínar Stillingar bjóða.
Mörgum hentar til dæmis að geta stækkað letur og aukið línubil. Þetta á meðal annars við um eldri notendur sem þreytast fljótt við að lesa smátt letur.
Til eru margs konar gerðir lesblindu og mismunandi hvers konar framsetning hentar lesblindum. Sumum þykir auðveldara að lesa ef letur og bakgrunnur eru af ákveðnum litum, öðrum hentar að auka línubil og bil milli orða, enn öðrum hentar að fjarlægja skáletrun og svo mætti lengi telja.
Sömuleiðis þykir sumum með fulla sjón þægilegt að geta stöku sinnum skipt yfir í að lesa ljóst letur á dökkum grunni til að hvíla augun.
Þegar Mínar Stillingar voru hannaðar var reynt að koma til móts við óskir sem flestra. Þar sem aðeins er þörf á að velja sínar stillingar einu sinni er hægt að nostra við að velja þær stillingar sem henta hverjum og einum. Þær má síðan kalla fram á öllum vefjum sem nýta þjónustuna með einum músarsmelli. Það er líka auðvelt að breyta stillingunum ef þörf krefur með því að smella aftur á
.

